Kofrasel - Leikskóladeildin

Veturinn 2021-2022

Haustið 2021 stunda 11 nemendur á aldrinum 1-5 ára nám í leikskólanum. Þar af verður einn nemandi í samkennslu. Dagskipulag og stunda­skrá leikskólans eru skipulögð út frá aldri og þroska hvers barns. Börnunum er skipt í hópa eftir aldri og viðfangsefnin valin í samræmi við það.

Deginum er skipt þannig að börnin fái bæði skipulögð verkefni og frjálsan leik. Leikurinn er í öndvegi sem aðal náms- og þroskaleið barna á þessum aldri.

Leikskólinn er fyrsta skólastigið í skólakerfinu og ber honum að starfa í samræmi við lög og reglugerðir um leikskóla. Menntamálaráðuneytið fer með málaflokk leikskóla eins og annarra skóla í landinu. Starfsmenn sitja fund með skólastjóra einu sinni í viku og oftar ef þörf er á.

Leikskólinn verður í samstarfi við Skóla– og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar um að annast sérkennslu fyrir þá nemendur sem þess þurfa.

Uppeldis- og námssvið leikskólans eru:

  • umönnun og daglegar venjur
  • leikurinn
  • mál og málörvun
  • myndsköpun og myndmál
  • tónlist - hljóð og hreyfing
  • náttúran
  • samfélagið

Markmið leikskólans eru að:

  • efla sjálfsmynd barna
  • barnið öðlist virðingu og viðurkenningu og læri að treysta á eigin verðleika
  • að barnið finni öryggi og læri að taka frumkvæði og sýna tillitssemi
  • að barnið læri að móta sínar eigin skoðanir, koma þeim á framfæri og taka á móti skoðunum annarra
  • að styrkja börnin fyrir skólagöngu með samkennslu (elstu börn leikskóla með yngstu börnum grunnskóla)

Starfsmenn leikskóladeildar

Anna Sigurðardóttir, Eyrardalur 1, S: 691-2531 ( 07:45- 16:00) 
Salbjörg Sigurðardóttir, Svarthamar, S:618-2612  (8:00 - 16:00)
Vanda C. Da Silva Encaracao, Holtagata, S: 692-0952( 08:00 – 16:00)

Leikskóladeildin Kofrasel

Leikskóli Súðavíkur tók til starfa 1986. Eftir snjóflóðin 1995 var byggðin flutt á öruggt svæði þar sem Súðavíkurbyggð stendur nú. Súðavíkurskóli sem ávallt hafði staðið í um kílómeters fjárlægð frá gamla þorpinu en stendur nú í hjarta byggðarinnar. Skömmu eftir flóð hófst stafsemi leikskólans að nýju og þá í myndlistarstofu Súðavíkurskóla. Þessar sérstöku aðstæður urðu upphafið að nánari samstarfi leik- og grunnskóla en áður þekktust. Þegar uppbygging hófs í nýju byggðinni var ákveðið að byggja leikskólahúsnæði við skólahúsnæði Súðavíkurskóla. Lágu þar tvær ástæður að baki. Annarsvegar hagræðing og hins vegar aukin tækifæri í skólamálum.

Þegar leikskólinn flutti í nýtt húsnæði árið 1996 var hafist handa við að koma á markvissu samstarfi leik- og grunnskóla undir heitinu Heiltækur skóli. Var í því verkefni horft til samkennslu leik- og grunnskólabarna og samvinnu starfsfólks í leik- og grunnskóla. Byrjað var á verkgreinum þar sem elstu börn leikskólans svokallaður 0. bekkur naut samkennslu í grunnskólanum.

Í dag hefur þetta þróast í 12 stunda samkennslu í bóklegum og verklegum greinum með 1.2.og 3. bekk. Lögð er áhersla á að þau kynnast grunnþáttum skólastarfsins og þeim hefðum sem tengjast Súðavíkurskóla, eins og að bjóða góðan dag, kveðja með handabandi og bíða í röð. Samkennslan er unnin í samvinnu leik- og grunnskólakennara og þess gætt að börnin vinni á sínum forsendum með gleði og ánægju að leiðarljósi.

Sumarið 2007 fékk leikskólinn nafnið Kofrasel. Íbúar og gestir Súðavíkur sendu inn tillögur að nafni á leikskólann og bárust rúmlega 50 tillögur. Dómnefnd valdi nafnið út frá tengingu við helsta kennileiti Álftafjarðar fjallið Kofra sem stendur ofan byggðarinnar. Kofrasel stendur á milli fjalls og fjöru í fögru umhverfi Álftafjarðar. Það er stutt í náttúruna og tenginu við samfélag og sögu. Við erum dugleg að vera úti og hreyfum okkur mikið þá lærum að klæða okkur eftir veðri og þekkja styrk okkar.

Velkomin í heimsókn
Börn og starfsfólk Kofrasels.