
Um Súðavíkurskóla
Súðavíkurskóli er fámennur skóli sem samanstendur af þremur skóladeildum þ.e. leik- grunn- og tónlistardeild. Skólinn er staðsettur í miðju þorpsins og því stutt til fjalls og fjöru. Umhverfið gefur mikla möguleika til að nýta til kennslu. Atvinnulíf í þorpinu hefur orðið einsleitara með árunum og fyrirtækjum fækkað, það er því ekki mikil sóknarfæri hjá skólanum þegar kemur að því að tengja grunnskóla og atvinnulíf í nærumhverfi.Slíkt er þó reynt eftir því sem tækifæri gefast og tengist það þá sjávarútvegi. Áhersla á hreyfingu er stór þáttur í skólastarfinu og tvisvar í viku hefjum við skólastarfið á hreyfingu í íþróttasalnum. Mötuneyti er starfrækt í skólanum og fá allir nemendur bæði morgunmat og hádegismat gjaldfrítt. Það eru 16 nemendur í leikskóladeild, 16 nemendur í grunnskóladeild, tónlistarkennsla féll niður í vetur. Fimm ára nemendur í leikskóladeild eru 10-12 kennslustundir í grunnskóladeildinni og þá í samkennslu með 1. -4. bekk, í vetur voru það tveir nemendur.Starfsmenn við skólann eru 8 í mismiklu starfshlutfalli.Þá má geta þess að mikill fjölbreytileiki er í skólanum, hvað þjóðerni varðar, en nemendur og starfsmenn eru af 7 þjóðernum.
Aðferð
Skólastjóri, kennarar ásamt skólasálfræðingi skólans, unnu eftir 5 ára matsáætlun, (sjá fylgiskjal 1) þar sem fyrir skólaárið 2025-2026 yrðu eftirfarandi þættir teknir fyrir. Þættirnir eru: 1) Skóladagar, skólanámskrá, starfsáætlun, áætlanir og verklagsreglur. 2) Skólabragur -Viðmót og menning. 3) Unnið við þætti úr umbótaskýrslu.
- Skóladagar, skólanámskrá, starfsáætlun, áætlanir og verklagsreglur.
Aðferð
Tveir kennarar skólans ásamt, skólasálfræðingi ogskólastjóra fóru yfir þann matsþátt sem fyrirhugað var að taka á þessu skólaári og það eru skóladagar, skólanámskrá, starfsáætlun, áætlanir og verklagsreglur. Gögn voru tekin saman s.s. lög, reglugerðir, drög að aðalnámskrá o.s.frv. Farið var yfir skólanámskrá skólans og hún borin saman við lög, reglugerðir og aðalnámskrá. Í upphafi fóru starfsmenn yfir drög nýrrar aðalnámskrár og útbjuggu lista yfir þá efnisþætti sem þar eru sagðir eiga að vera í skólanámskrá. Í framhaldinu fórum við yfir okkar skólanámskrá og merktum við hvaða atriði væru til staðar og hvað vantaði að öllu leyti eða að hluta.
Markmið:
Markmiðið er að uppfylla þau skilyrði sem gerð eru um útgáfu skólanámskrár og starfsáætlunar og að allar nauðsynlegar upplýsingar um skólastarfið séu aðgengilegar á einum stað.
Viðmið
Að skólanámskrá og starfsáætlanir okkar uppfylli kröfur aðalnámskrár að öllu leyti og séu aðgengilegar á heimasíðu Súðavíkurskóla.
Niðurstaða
Í skólanámskrá Súðavíkurskóla var allt sem þar á að vera, en í Starfsáætlun voru þrír þættir af fjórtán sem þörfnuðust endurskoðunar samkvæmt aðalnámskrá, þeir eru:
- Símenntunaráætlun
- Rýmingaráætun
- Viðbrögð við vá, s.s.veikindafaraldri, óveðri, eldgosi, jarðskjálftum
Úrbætur
Setja inn þessar áætlanir í Starfsáætlun, en þær eru til en ekki staðsettar í Starfsáætluninni. Þessar áætlanir verða settar inn með tilvísun á slóðir á heimasíðu skólans.
Endurmat
Skólanámskráin lesin yfir á hverju ári bæði af kennurum, foreldrum og fræðslunefnd Súðavíkurhrepps.
Skólabragur – viðmót og menning
Skólabragur
Súðavíkurskóli hefur unnið eftir Uppbyggingarstefnunni (Uppeldi til ábyrgðar) síðan 2009. Þessi stefna hefur virkað vel fyrir skólastarfið. Við leggjum sérstaka áherslu á fjögur lífsgildi sem eru einkunnarorð skólans og sameign allra.
Þau eru: Vellíðan sem felur í sér viðurkenningu, gleði og góðan starfsanda.
Virðing sem felur í sér vandvirkni, tillitssemi og trausti.
Heiðarleiki sem felur í sér hreinskilni, sáttfýsi og samstöðu.
Framfarir sem felur í sér framvindu í námi, starfi, samskiptum og leik.
Þá erum við með skýr mörk þar sem allir eru sammála um að standa saman um að stöðva yfirgang, dónaskap, einelti og ofbeldi.
Grunnþarfirnar fimm eru virkar en þær eru: Umhyggja – að tilheyra. Frelsi – að fá að velja. Áhrif – að standa sig vel. Ánægja – að hafa gaman. Öryggi – að lifa af. Það að þekkja þarfir sínar er grundvöllur þess að maður skilji hegðun sína og geti breytt henni til betri vegar. Það er öllum hollt að skoða sjálfa sig og reyna að komast að því hvaða þarfir eru sterkari hjá þeim og hverjar veikari. Að læra að bera ábyrgð á hegðun sinni og gjörðum er mikill kostur fyrir hverja manneskju.
Gerður er bekkjarsáttmáli á hverju skólaári, þar sem nemendur koma sér sama um reglur sem þeir vilja leggja áherslu á yfir veturinn í skólastofunni.
Sáttarleiðin sem felur í sér að kenna nemendum að leita sátta ef upp koma árekstrar, er virk leið sem allir læra.
Allt efni er sett upp á veggi skólans til prýði og minna okkur á stefnuna okkar.
Reglulega eru haldin foreldrafærni námskeið um stefnuna, gefin út fréttabréf og miklar upplýsingar eru á heimasíðu skólans, þannig að allir geti fylgst með
Þriggja ára þróunarverkefni um innleiðingu Leiðsagnarnáms (2019 – 1922) hefur verið reynt að vinna eftir því eins og kostur er, en kennarar sem tóku þátt í verkefninu hafa látið af störfum. Leiðsagnarnám er námsmenning þar sem nemendur og kennarar hafa vaxandi hugarfar, trú á sjálfum sér, hæfni til að greina eigin námsvitund og litið er svo á að allir geti tekið meiri framförum. Kennarar eru með námsveggi í skólastofum og skýr markmið sem nemendur skilja og leggja sig fram við að ná til að auka árangur sinn. Verkefni er sett upp með endurgjöf reglulega og hefur það gengið mjög vel.
Byrjendalæsi var þróunarverkefni 2022 – 2024. En þess má geta að Byrjendalæsi á vel við með Uppbyggingarstefnunni sem og leiðsagnarnáminu, þetta þrennt talar vel saman og fléttast vel inn í allt skólastarf.
Okkar áhersla er að allir taki þátt, bæði nemendur og starfsmenn, sem og að leikskólinn sé með okkur í sem flestu. Þannig fara allir saman og gróðursetja tré á hverju ári, taka þátt í árshátíðinni, jólagríninu og litlu jólunum. Allir fara saman í útiveru eins og hægt er, t.d. að skoða nýfædd lömb, leika sér í Raggagarði, tína rusl, skoða og safna ýmsu úr fjörunni og vinna verkefni því tengdu, halda sýningu, njóta þess að borða nesti í útiveru svo eitthvað sé nefnt.
Foreldrum er oft boðið til þátttöku og eru þá útskýringar sendar á þeirra tungumáli eða notast við túlkaþjónustu, þannig að allir viti hvað er um að vera hverju sinni.
Markmið:
Markmiðið er að uppfylla okkar helstu áherslur á að allir taki þátt og séum með í sem flestum uppákomum á vegum skólans.
Viðmið
Allir taki þátt – enginn skilin út undan
Niðurstaða
Við teljum að allir taki þátt þegar það á við og okkur finnst auðvelt að fá alla með og eflaust er það vegna þess að allir nemendur eru orðnir svo vanir þessu. Þeir þekkja ekkert annað.
Úrbætur
Teljum ekki þörf á úrbótum en passa upp á að halda þessari þróun áfram.
Niðurstöður innra mats Súðavíkurskóla 2025 – 2026
Þegar niðurstöður úrbótaáætlunar frá því skólaárið 2024 – 2025 eru skoðaðar, þá hefur náðst að uppfylla þau skilyrði sem taka þurfti fyrir og helstu úrbótum lokið. Foreldrar eru almennt mun ánægðari með leikskólann. Lögð er áhersla á að leggja fyrir aðra foreldrakönnun fyrir bæði leik- og grunnskóla næsta skólaár.
Anna Lind Ragnarsdóttir
Skólastjóri Súðavíkurskóla